Leiðarvísir fyrir kynningarherferðina

Fréttabréf

Hentar:

Öllum gerðum samtaka.

Hvernig er hægt að nota þetta?

Fréttabréf eru gagnleg leið til að halda fólki reglulega upplýstu með mikilvægum upplýsingum, til dæmis um upphaf herferðar og skilaboð hennar. Fréttabréf geta bæði verið prentuð og gefin út á netinu.

Ávinningur

  • Auðveld í dreifingu (einkum með tölvupósti)
  • Tryggir að samstarfsaðilar eða markhópar fái reglulegar fréttir.

Takmarkanir

  • Stærsta vandamálið er oft að finna nógu margar sögur til að fylla fleiri en eina útgáfu
  • Að hafa tíma til að koma hverju tölublaði út á réttum tíma.

Innihald og útlit

  • Reyndu að hafa sögurnar þínar stuttar og skarpar.
  • Brjótið upp stórar greinar með undirhausum til að gera þær meira aðlaðandi.
  • Merkið skjalið greinilega svo fólk viti frá hverjum það er.
  • Þegar um er að ræða prentað fréttabréf skaltu hvetja lesendur til að líta inn í blaðið með því að gefa til kynna hvaða sögur eru á hinum síðunum.
  • Notaðu fyrirsagnir við myndir til að segja frá og styðja aðalsögu þína:
    • Ef til dæmis ljósmynd sýnir nýja vöru, ekki bara segja „nýja varan“. Settu í staðinn eitthvað eins og „Nýja varan getur dregið úr útsetningu fyrir hávaðamengun um 15%“.