Leiðarvísir fyrir kynningarherferðina

Bæklingar/dreifirit

Hentar:

Öllum gerðum samtaka.

Ávinningur

  • Bæklingar er nytsamlegir fyrir mikilvægar upplýsingar, sem eiga að endast lengi, eins og til dæmis skilaboð herferðarinnar þinnar
  • Þú getur valið á milli mismunandi sniðs, skreytt texta með myndum og notað hönnun sem vekur eftirtekt.
  • Það má dreifa bæklingum á stefnum, viðburðum og blaðamannafundum
  • Það má líka nota þá sem efni til að deila með samstarfsaðilum þínum.

Takmarkanir

  • Þegar prentað er geturðu ekki auðveldlega uppfært bæklinginn.
  • Hann er venjulega skjal sem inniheldur mjög almennar upplýsingar sem kunna ekki að valda áhuga á sérhæfðum markhópum og viðskiptafélögum til langs tíma.

Hönnun bæklings/dreifirits

  • Bæklingurinn/dreifiritið ætti að:
    • Vera áberandi á sjónrænan hátt
    • Nota stuttar setningar og einfalt mál.
  • Ávalt skal virða valið sjónrænt auðkenni og hafa lykilatriði sýnileg: t.d. kröfu, vörumerki og vefsíðu.
  • Notaðu liti fyrirtækis þíns og prentfrágang í texta og myndefni. Þetta mun hjálpa til við að efla vitneskju um fyrirtækið þitt og undirstrika samræmi og fagmennsku þess.
  • Notaðu skrár með mikilli upplausn og veldu myndirnar þínar vandlega.