2016-17: Vinnuvernd alla ævi


Leiðtogafundurinn Vinnuvernd er allra hagur

Leiðtogafundur herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur 2017 var haldinn 21. og 22. nóvember 2017 í Euskalduna ráðstefnumiðstöðinni í Bilbaó á Spáni.

Image

Viðburðurinn færði saman leiðandi sérfræðinga í Evrópu og stjórnmálamenn til að ræða niðurstöður herferðarinnar Vinnuvernd alla ævi en hún stóð yfir í 2 ár. Þátttakendur skiptust á góðum starfsvenjum og ræddu um stefnur til framtíðar í sal og á smærri samhliða fundum til að tryggja sjálfbæra starfsævi hjá fyrirtækjum í Evrópu.

Efni vinnusmiðja var meðal annars: „góðar starfsvenjur til að stuðla að sjálfbærum vinnustöðum“; „endurhæfing og aftur til vinnu“; „20 ár af Napó — fjölhæfa félaganum okkar til að kynna vinnuvernd“; og „skipti á góðum starfsvenjum á sviði vinnuverndar — það besta af 10 ára samstarfi EU-OSHA í herferðunum“.

Að lokum hélt stofnunin einnig stutta kynningu á komandi herferð Vinnuvernd er allra hagur 2018-19, sem hleypt verður af stokkunum í apríl 2018, en hún mun auka vitund um mikilvægi þess að koma í veg fyrir áhættur af völdum hættulegra efna.

Myndbandsupptaka af málstofum

Ljósmyndir

Skýrslur úr málstofum